Pondera er leitarsjóður sem kaupir vel rekið íslenskt fyrirtæki og leiðir áframhaldandi vöxt þess.
Hafa sambandUm Pondera
Pondera leitar að grónum og arðbærum fyrirtækjum í stöðugum rekstri þar sem eigendur eru farnir að huga að næsta kafla. Við tökum við rekstrinum og byggjum áfram á þeim grunni sem þegar hefur verið lagður.
Vöxtur getur orðið bæði innan fyrirtækjanna sjálfra og með samruna fleiri félaga í eina sterka heild. Áherslan er á uppbyggingu fremur en að dreifa kröftunum á mörg óskyld félög.
Bakhjarl
Bakhjarl og fjárfestir í Pondera er Leitar II, sérhæfður sjóður í rekstri Leitar Capital Partners. Leitar fjárfestir í leitarsjóðum og öflugu fólki, og að félaginu kemur breiður hópur fjárfesta og stjórnenda með mikla reynslu af rekstri og uppbyggingu fyrirtækja.
Nánar um LeitarHafa samband
Þekkir þú fyrirtæki sem gæti átt heima hjá Pondera, eða ert þú sjálf(ur) að huga að sölu? Sendu okkur línu. Öll samskipti eru trúnaðarmál.